„Ég hef verið félagi í Sjálfstæðisflokknum alveg frá blautu barnsbeini og fyrir mér hefur pólitíkin verið einskonar trúarbrögð, en eftir atburði undanfarinna daga og vikna er mér eiginlega bara öllum lokið,“ segir fjárfestirinn Kristinn Aðalsteinsson á Eskifirði í samtali við Viljann, en hann sagði sig nýlega úr Sjálfstæðisflokknum og gekk til liðs við Miðflokkinn.
Kristinn, eða Diddi eins og hann er þekktur meðal Austfirðinga, er sonur útgerðarmannsins Aðalsteins heitins Jónssonar, eða Alla ríka, og hefur komið að útgerð og margvíslegum fjárfestingum hér heima og erlendis á undanförnum árum. Fjárfestingafélag hans Stekkur, er m.a. stór hluthafi í Securitas og Límtré/Vírnet, svo dæmi séu tekin.
Diddi hefur verið búsettur í Bretlandi um nokkurra ára skeið og fylgst vel með þarlendri pólitík, en flutti aftur heim skömmu fyrir síðustu áramót. Hann segist hafa misst tímabundið kosningarétt hér á landi við vistaskiptin, en sé nú kominn með hann aftur, og það hafi vakið sig til umhugsunar um lýðræðislega skyldu hvers og eins.
Ólýðræðislegt bákn í Brussel
„Við sjáum vel í Bretlandi hver þróunin er, að stórt og ólýðræðislegt bákn í Brussel vill öllu ráða, þótt þar stjóri för fólk sem enginn hefur kosið. Bretum hefur gengið skelfilega að ganga út úr sambandi sem þeir vilja ekki vera í.
Ég átti aldrei von á því að sá dagur kæmi að ég yfirgæfi Sjálfstæðisflokkinn
Þegar kom að deilunni um orkupakkann hér heima fannst mér mikil samsvörun í þessum málum. Að við Íslendingar séum að afsala okkur rétti til að ráða hagsmunum okkar sjálf og alltaf er bent á andlitslausa aðila í Brussel sem hafi ákveðið hitt og þetta og ekki sé annað að gera, en hlýða því,“ bætir hann við.
Diddi segir að vel fari á með honum og Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, en hugmyndafræðilega fari leiðir þeirra ekki lengur saman. „Þetta er ekkert persónulegt, en alls staðar þar sem ég fer, segir fólk það sama og ég skynja mikla óánægjubylgju meðal sjálfstæðismanna sem á eftir að koma fram,“ segir hann.
„Ég átti aldrei von á því að sá dagur kæmi að ég yfirgæfi Sjálfstæðisflokkinn. En mér finnst eiginlega að hann hafi yfirgefið mig og tekið upp stefnu einhvers allt annars flokks. Svo þá var ekkert annað í stöðunni en segja bless.“