„Kæru vinir, nýlega greindist Una dóttir mín með heilaæxli sem reyndist vera krabbamein. Nú tekur við löng og ströng krabbameinsmeðferð. Mitt verkefni verður að styðja hana í því ferli ásamt fjölskyldu og vinum. Þetta er stærsta verkefni lífs míns.“
Þannig hljóðar stutt kveðja sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra birti á samskiptamiðlum í morgun, en hún hefur verið í leyfi undanfarna daga af persónulegum ástæðum.
„Ég ætla, með hjálp samstarfsfólks og fjarfunda, að sinna áfram störfum heilbrigðisráðherra og mun skipuleggja mína vinnu á næstunni í samræmi við breyttar aðstæður.
Vísa má í þessa færslu en ég mun ekki fjalla meira um þetta mál opinberlega að svo stöddu,“ segir ráðherrann ennfremur.