Dregur sig út úr þingstörfum vegna krabbameins: Kona fer í stríð

Þórunn Egilsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins.

„Svo háttar til að ég hef fengið stórt verkefni til að takast á við í lífinu. Ég hef greinst með brjóstakrabbamein. Það er þess eðlis að ég þarf að fara í harða meðferð gegn því. Þess vegna mun ég draga mig út úr þingstörfum og kalla inn varamann.“

Þessa tilkynningu setti Þórunn Egilsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, inn á fésbókarsíðu sína fyrir stundu.

Hún hefur verið alþingismaður Norðausturkjördæmis síðan 2013.

„Ég óskaði ekki eftir þessu verkefni frekar en nokkur annar sem fær þetta tilboð í lífinu. En ég ætla að einhenda mér í verkið af öllum mínum mikla þunga. Ég hef aldrei farið baráttu til að tapa og hyggst ekki byrja á því núna. Bjartsýn, einbeitt, ákveðin og umvafin mínu fólki ætla ég að takast á við verkefnið,“ segir Þórunn ennfremur.

Þórarinn Ingi Pétursson, fyrrverandi formaður Landssamtaka sauðfjárbænda. tekur sæti Þórunnar sem þingmaður meðan á veikindaleyfi hennar stendur.