Fólk verði ekki valdalaust „í höndum stórkapítalista“

„Þetta er fjölbreyttur listi og kraftmikill. Fólk sem vill breyta samfélaginu þannig að allir hafi tækifæri til blómstra, hafi öruggt og gott húsnæði og góð laun. Það þarf að útrýma fátækt og það strax. Burt með alla kúgun og ofbeldi bæði gagnvart fólki og náttúru og inn með kærleika, samkennd, samvinnu og mannhelgi.“ segir Katrín Baldursdóttir sem skipar fyrsta sæti á lista Sósíalistaflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.

Á vef sósíalista segir að slembivalinn hópur félaga í Sósíalistaflokknum raði á lista flokksins fyrir kosningar. Reynslan hafi sýnt að niðurstaða slembivalinna hópa gefi í flestum tilfellum skýrari mynd af vilja grasrótar en kosning eða prófkjör.

„Sósíalistaflokkurinn hefur brýnt erindi. Að fólk sé ekki valdalaust í höndum stórkapítalista. Fólk á að hafa tækifæri til að taka þátt í sköpun og smíði samfélagsins og hafa aðgang að gjaldfrjálsu heilbrigðis-og menntakerfi. Við á listanum í Reykjavík suður munum berjast af einurð fyrir þessu og mörgum öðrum réttlætismálum eins og að auðlindir verði færðar almenningi.“

Símon Vestarr er í öðru sæti. „Kapítalismi elur af sér auðsöfnun, auðsöfnun elur af sér spillingu, spilling kæfir lýðræði og að reyna að stemma stigu við spillingu án þess að setja kapítalismanum skorður er eins og að reyna að vinna körfuboltaleik með hendur bundnar fyrir aftan bak. Þess vegna þarf að kalla hlutina sínum réttu nöfnum og takast á við auðvaldið af fullum krafti.“

„Mér finnst löngu orðið ljóst að Útlendingastofnun og lögregla þjónusta ekki einstaklinginn en ganga þess í stað erinda rótgróinna hægri-pólitískra afla sem hafa það eitt markmið að viðhalda hinu kapítalíska kerfi á kostnað almennings og það sama á við um aðrar stjórnsýslustofnanir sem fara með mál okkar viðkvæmustu hópa,“ segir María Lilja Þrastardóttir sem vermir 3. sætið.

Listi Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavík Suður:

  • Katrín Baldursdóttir, atvinnulífsfræðingur
  • Símon Vestarr Hjaltason, kennari
  • María Lilja Þrastardóttir Kemp, laganemi
  • Jón Kristinn Cortez. tónlistarmaður
  • Ása Lind Finnbogadóttir, framhaldsskólakennari
  • Jón Óskar Hafsteinsson, myndlistarmaður
  • Sigrún Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri
  • Halldóra Jóhanna Hafsteinsdóttir, frístundaleiðbeinandi
  • Bára Halldórsdóttir, öryrki
  • Bárður Ragnar Jónsson, þýðandi
  • Ellen Kristjánsdóttir, tónlistarmaður
  • Björn Reynir Halldórsson, sagnfræðingur
  • Krummi Uggason, námsmaður
  • María Sigurðardóttir, leikstjóri
  • Tamila Gámez Garcell, kennari
  • Elísabet Einarsdóttir, öryrki
  • Kristjana Kristjánsdóttir, leikskólakennari
  • Daníel Örn Arnarsson, varaborgarfulltrúi
  • Mikolaj Cymcyk, námsmaður
  • Sigurjón Baldur Hafsteinsson, prófessor
  • María Gunnlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur og öryrki
  • Andri Sigurðsson, hönnuður