Fyrstur framsóknarmanna til að verða borgarstjóri

Borgarstjórn kaus í gær Einar Þorsteinsson borgarstjóra. Er hann þá fyrsti framsóknarmaðurinn í langri sögu flokksins, sem oftast hefur verið kenndur við dreifbýlið, til að verða borgarstjórinn í höfuðborginni.

Dagur B. Eggertsson afhenti Einari lyklavöldin að borgarstjóraskrifstofunni að borgarstjórnarfundi loknum.

Svo vill til að í gær hafði Dagur gegnt embættinu samfellt í 3500 daga. Áður var hann borgarstjóri í hundrað daga árið 2008.Dagur var í dag kosinn formaður borgarráðs og tekur við því hlutverki af Einari en þessar breytingar á stjórnun borgarinnar eru samkvæmt samkomulagi meirihluta Samfylkingar, Framsóknarflokks, Pírata og Viðreisnar í borgarstjórn.

Árelía Eydís Guðmundsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, var í dag kjörin í borgarráð og tekur við af Heiðu Björgu Hilmisdóttur, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar. Þá var kosið um varafulltrúa í borgarráði sem nú eru Heiða Björg og Magnea Gná Jóhannsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokks, í stað Skúla Helgasonar, Samfylkingunni og Árelíu Eydísar.

Dagur var í dag kosinn formaður borgarráðs og tekur við því hlutverki af Einari en þessar breytingar á stjórnun borgarinnar eru samkvæmt samkomulagi meirihluta Samfylkingar, Framsóknarflokks, Pírata og Viðreisnar í borgarstjórn.  