Getur vart lýst því hversu mikill léttir það er að vera laus við verkina

Hugleiðingu dagsins á innviðaráðherrann Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, sem ekki verður við þingsetningu á morgun og var ekki á fundi ríkisráðs í dag, þar sem hann er að jafna sig eftir uppskurð.

Á fésbókina skrifar Sigurður Ingi:

„Það er fallegur mánudagur í uppsveitum eftir stóra réttarhelgi. Aldrei þessu vant komst ég ekki í réttirnar og kom það til af góðu. Í síðustu viku gekkst ég undir aðgerð þar sem skipt var um mjöðm en síðustu árin hefur sú hægri valdið mér miklum óþægindum. Það er ótrúlegt hvað tæknin er orðin góð. Öll umgjörðin til fyrirmyndar og hlýjan og viðmótið einstakt. Sama dag og lærleggurinn var sagaður í sundur var ég farinn að staulast um. Ég get vart lýst því hversu mikill léttir það er að vera laus við verkina,“ segir hann og bætir við að næstu daga verði hann í fjarvinnu frá Syðra-Langholti en muni innan skamms mæta hlaupandi í ráðuneyti og á þing.