Helgi yfirlögfræðingur Landsvirkjunar

Helgi Jóhannesson yfirlögfræðingur Landsvirkjunar.

Helgi Jóhannesson lögmaður hefur verið ráðinn yfirlögfræðingur Landsvirkjunar.

Helgi hefur verið einn af eigendum LEX lögmannsstofu um árabil. Hann var stjórnarmaður í Landsvirkjun á árunum 2014-2017. Auk kandídatsprófs í lögum frá Háskóla Íslands og réttinda til málflutnings fyrir héraðsdómi og Hæstarétti er Helgi með LL.M (Master of Law) gráðu frá lagadeild Háskólans í Miami.

Helgi hefur verið stjórnarmaður og formaður Lögfræðingafélags Íslands og Lögmannafélags Íslands, auk þess að hafa verið stundakennari í viðskiptalögfræði við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík.

Helgi hefur mikinn áhuga á útivist, er þekktur fyrir að deila myndum af ferðalögum sínum vítt og breitt um landið okkar og er í stjórn Ferðafélags Íslands. Helgi er þriggja barna faðir. Sambýliskona hans er Þórný Jónsdóttir markaðsfræðingur.