Hulda Ragnheiður Árnadóttir, framkvæmdastjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands var kosin formaður FKA á einum fjölmennasta aðalfundi félagsins sem haldin var í húsakynnum deCODE genetics, í gær 15. maí. Í framboði til formanns var einnig Rakel Sveinsdóttir, fyrrum formaður FKA sem sóttist eftir endurkjöri.
Í framboði til stjórnar voru sjö konur um þrjú sæti til tveggja ára og tvo sæti til eins árs. Kosnar voru í stjórn til tveggja ára: Sigríður Hrund Pétursdóttir, Ragnheiður Aradóttir og Áslaug Gunnlaugsdóttir. Til eins árs voru kosnar Hulda Bjarnadóttir og Margrét Jónsdóttir Njarðvík. Að auki situr Lilja Bjarnadóttir í stjórn, en hún var kjörin til tveggja ára árið 2018.
„Ég er mjög þakklát fyrir þann stuðning sem ég fékk frá félagskonum,“ segir Hulda Ragnheiður. „Það verður spennandi að takast á við krefjandi verkefni í samstarfi við þær öflugu konur sem gefið hafa kost á sér til starfa í nefndum, deildum og stjórn félagsins. Ég hlakka til að fá tækifæri til að virkja enn fleiri konur til þátttöku, bæði í núverandi verkefnum og þeim verkefnum sem kynnt verða til leiks þegar nýtt starfsár hefst.“