Hún braut blað í sögu Íslands sem fyrsti kvensendiherrann

Félag kvenna í atvinnulífinu sæmdi Sigríði Á. Snævarr sendiherra þakkarviðurkenningu FKA á dögunum við hátíðlega athöfn í Gamla bíói.

Viðurkenningar FKA hafa verið veittar allt frá stofnun félagsins, sem fagnar tuttugu ára starfsafmæli á árinu. 

Sigríður er í hópi reynslumesta starfsfólks utanríkisþjónustunnar Hún hefur gegnt sendiherrastöðu í hátt í þrjá áratugi en árið 1991 varð hún fyrst íslenskra kvenna til að hljóta skipun sendiherra. Frá 2017 hefur hún veitt deild heimasendiherra forstöðu en auk þess er hún sendiherra Íslands gagnvart Páfagarði, Singapúr og Ástralíu. 

„Sigríður braut blað í sögu Íslands árið 1991 þegar hún var skipuð fyrsti íslenski kvensendiherrann, en hún á að baki fjörutíu ára farsælan feril í utanríkisráðuneytinu. Á einstökum ferli, bæði í stjórnsýslu og atvinnulífi, hefur hún helgað sig því að gæta hagsmuna lands og þjóðar og leita tækifæra fyrir Ísland á alþjóðlegri grundu,“ segir meðal annars í umsögn dómnefndar um Sigríði.