Ingvar og Axel Kári til liðs við Íslensku lögfræðistofuna

Ingvar Smári Birgisson, formaður SUS.

Ingvar S. Birgisson og Axel Kári Vignisson hafa gengið til liðs við Íslensku lögfræðistofuna.

Ingvar er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi. Síðastliðin ár hefur hann starfað hjá Nordik lögfræðiþjónustu en áður var hann blaðamaður á Morgunblaðinu. Samhliða lögfræðistörfum er Ingvar formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. Sérsvið Ingvars eru á sviði félagaréttar, samninga- og kröfuréttar, fullnustu og skuldaskila og stjórnsýsluréttar.

Unnusta Ingvars er Tanja Rún Kristmannsdóttir, hjúkrunarfræðingur, og eiga þau eitt barn saman.

Axel Kári Vignisson.

Axel er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands. Síðastliðin ár hefur hann starfað hjá embætti umboðsmanns borgarbúa og sem sölumaður innan ferðaþjónustunnar. Sérsvið Axels eru á sviði skaðabóta- og vátryggingaréttar, stjórnsýsluréttar, samninga- og kröfuréttar, félagaréttar, fullnustu og skuldaskila.

Sambýliskona Axels er Hildur Guðrún Þorleifsdóttir, lögfræðingur, og eiga þau eitt barn saman.

Íslenska lögfræðistofan annast alla almenna lögfræðiráðgjöf og hagsmunagæslu fyrir einstaklinga, fyrirtæki, stofnanir og erlenda aðila. Hjá stofunni starfa átta lögfræðingar með málflutningsréttindi á öllum dómstigum.