Jón Helgason, fv. alþingismaður, ráðherra og forseti sameinaðs þings, lést á Hjúkrunarheimilinu Klausturhólum á Kirkjubæjarklaustri í fyrrakvöld, 87 ára að aldri.
Jón var um langt skeið einn þekktasti stjórnmálamaður þjóðarinnar.
Hann var fæddur í Seglbúðum í Landbroti 4. október 1931. Foreldrar: Helgi Jónsson (fæddur 29. apríl 1894, dáinn 22. maí 1949) bóndi þar og kona hans Gyðríður Pálsdóttir (fædd 12. mars 1897, dáin 15. maí 1994) húsmóðir. Guðrún Þorkelsdóttir er eftirlifandi eiginkona hans.
Börn: Björn Sævar Einarsson (fóstursonur, 1962), Helga (1968), Bjarni Þorkell (1973).
Jón varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1950. Hann stóð fyrir búi móður sinnar í Seglbúðum nokkur ár að námi loknu. Bóndi þar síðan 1959. Sá um sauðfjárræktarbú í Seglbúðum 1950–1980. Stundakennari við unglingaskólann á Kirkjubæjarklaustri 1966–1970. Skipaður 26. maí 1983 landbúnaðar- og dóms- og kirkjumálaráðherra, lausn 28. apríl 1987, en gegndi störfum til 8. júlí. Skipaður 8. júlí 1987 landbúnaðarráðherra, lausn 17. september 1988, en gegndi störfum til 28. september.
Endurskoðandi Kaupfélags Skaftfellinga 1951–1972 og stjórnarformaður þess 1972–1983. Formaður Félags ungra framsóknarmanna og síðan Framsóknarfélags Vestur-Skaftafellssýslu 1955–1974. Í hreppsnefnd Kirkjubæjarhrepps 1966–1986, oddviti 1967–1976. Sýslunefndarmaður 1974–1978. Í fyrstu stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Fulltrúi á Búnaðarþingi 1973–1975 og á fundum Stéttarsambands bænda 1961–1975, í stjórn þess og Framleiðsluráðs 1972–1979. Í stjórn Rafmagnsveitna ríkisins 1978–1983. Í stjórn Endurbótasjóðs menningarstofnana 1990–2002. Sat á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1975 og 1988. Fulltrúi Íslands á fundum þingmannanefndar EFTA 1977, 1980–1981 og 1991. Í Norðurlandaráði 1978. Í Vestnorræna þingmannaráðinu 1991–1994. Í stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins frá 1990. Formaður Búnaðarfélags Íslands 1991–1995. Í lýðveldishátíðarnefnd 1994. Í Þingvallanefnd 1994–1995.
Alþingismaður Suðurlands 1974–1995 fyrir Framsóknarflokkinn.
Landbúnaðar-, dóms- og kirkjumálaráðherra 1983–1987, landbúnaðarráðherra 1987–1988.
Forseti sameinaðs þings 1979–1983, forseti efri deildar 1988–1991. 2. varaforseti efri deildar 1978, 1. varaforseti efri deildar 1978–1979, 1. varaforseti sameinaðs þings 1991, 1. varaforseti Alþingis 1991.