Konráð eftirsóttur

Konráð S. Guðjónsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður fjármála- og efnahagsráðherra.

Konráð er hagfræðingur með B.Sc. gráðu frá Háskóla Íslands og M.Sc. frá Warwick háskóla. Hann hefur verið áberandi í umræðum um efnahagsmál í fjölmiðlum og eftirsóttur sem slíkur. Þannig hóf hann í reynd nýlega störf sem aðalhagfræðingur Arion banka, en hann starfaði einnig hjá Stefni, dótturfélagi bankans, og áður í greiningardeild bankans.

Konráð var hagfræðingur og aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands í fjögur ár og starfaði að auki tímabundið sem efnahagsráðgjafi Samtaka atvinnulífsins í fyrravetur. Þá hefur hann einnig sinnt kennslustörfum, auk þess að starfa hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands og við þróunarsamvinnu í Úganda og Tansaníu.

Konráð er fæddur árið 1988, alinn upp á Vopnafirði og er kvæntur Tinnu Isebarn.

Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir er einnig aðstoðarmaður Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, fjármála- og efnahagsráðherra.