„Kæru vinir og samstarfsmenn. Ég hef unnið minn síðasta dag og skrifað minn síðasta leiðara í Fréttablaðið. Ný stjórn hefur tekið við með nýju fólki og nýjum áherslum.“
Þetta segir Kristín Þorsteinsdóttir sem hætt hefur störfum sem útgefandi Fréttablaðsins. Hún skýrir frá þessu í færslu á fésbókinni og rifjar upp starfstíma sinn:
„Í rúm 5 ár, lengur en nokkur annar, stjórnaði ég fréttastofu 365 sem aðalritstjóri og útgefandi – þá stærstu fréttastofu landsins – og svo Fréttablaðinu eftir að fyrirtækinu var skipt upp, síðustu mánuði hef ég verið útgefandi. Þar áður sat ég í stjórn 365.
Flestar kennitölur miðlanna, sem ég stjórnaði vitna um góðan árangur. Fréttir Stöðvar 2 náðu að velgja keppinautnum undir uggum – oft vorum við með meira áhorf en RUV, visir.is komst í fyrsta skipti yfir mbl.is undir minni stjórn, við gerðum frábæra hluti með nýjum áherslum og útliti Fréttablaðsins. Við breyttum skipuriti fréttastofunnar og gerðum hlut kvenna meiri en nokkru sinni. Um tíma voru flestir yfirmenn konur og stundum voru vaktirnar eingöngu skipaðar konum.
Þetta voru dýrðlegir dagar.“
Kristín segir að auðvitað hafi skipst á skin og skúrir. „Við þurftum að velta hverri einustu krónu, enda höfðum við úr miklu minni peningum að spila en keppinautarnir. Reglulega var farið í sparnaðaraðgerðir. Lífið var ekki alltaf auðvelt.“
Hún segir að ekkert af þessu hefði tekist án frábærs samstarfsfólks og fyrir störf þeirra vilji hún þakka nú þegar leiðir skilji.
„Allt tekur enda. Vonandi tekur eitthvað nýtt og skemmtilegt við. Nóg er starfsorkan.“