Kveður sviðið í þakklæti og auðmýkt

„Það er með þakklæti og auðmýkt sem ég dreg framboð mitt til embættis forseta Íslands til baka þar sem tilskyldum fjölda meðmæla hefur ekki verið náð innan veittra tímamarka. Öllum meðmælum hefur verið eytt, rafrænum sem og á pappír.“

Þetta skrifar Sigríður Hrund Pétursdóttir athafnakona, sem undanfarnar vikur hefur vakið athygli með áformum sínum um forsetaframboð undir formerkjunum Frú forseti.

„Mig langar að þakka meðmælendum mínum fyrir traustið, hvatninguna og tækifærið sem þau veittu mér. Enn fremur langar mig að taka fram að á ferðum mínum um landið hefur verið vel á móti mér tekið í hvívetna og ég verið aufúsugestur hvar sem mig hefur borið að garði. Það segir margt um okkar einstöku þjóð.

Meðframbjóðendum öllum sendi ég hvatningar-, þakklætis- og stuðningskveðjur á sinni vegferð. Það er einstakt að búa í landi sem leyfir virkt lýðræði og tjáningarfrelsi. Að geta staðið upp og stigið fram eru mannréttindi sem við eigum að vernda með því að iðka – átakalaust.

Framundan eru áhugaverðar vikur þar sem þjóðin fær að kynnast fjölbreyttum frambjóðendum ítarlega. Það er einlæg ósk mín að við samgleðjumst og tökum fagnandi á móti hugrökku fólki með mildi og styrk að leiðarljósi. Njótum dýrmætra daga,“ segir hún að lokum.