Ný formaður Samtaka iðnaðarins kemur frá Marel

Árni Sigurjónsson, yfirlögfræðingur Marel, er nýr formaður Samtaka iðnaðarins. Úrslit í formannskjöri voru kunngjörð rétt í þessu.

Í framboði til formanns var auk Árna, Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir, stjórnarformaður Límtré Vírnets og Securitas.

Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í morgun var tilkynnt um úrslit kosninga og var Árni Sigurjónsson kjörinn nýr formaður með 71,50% greiddra atkvæða. Árni verður formaður Samtaka iðnaðarins fram til Iðnþings 2022.

Alls gáfu sjö kost á sér til almennrar stjórnarsetur og var kosið um fimm sæti. Þeir sem setjast í stjórn Samtaka iðnaðarins til næstu tveggja ára:

Arna Arnardóttir, gullsmiður   

Egill Jónsson, Össur                          

Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, CRI   

Valgerður Hrund Skúladóttir, Sensa  

Vignir Steinþór Halldórsson, MótX                 

Fyrir í stjórn Samtaka iðnaðarins eru:

Ágúst Þór Pétursson, húsasmíðameistari

Guðrún Halla Finnsdóttir, Norðurál 

Magnús Hilmar Helgason, Launafl

Sigurður R. Ragnarsson, ÍAV