Nýr forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Óskar Reykdalsson forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til fimm ára.

Óskar er sérfræðingur í heimilislækningum og hefur lokið meistaragráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu. Óskar hefur mikla og góða þekkingu á sviði lýðheilsu og er með langa reynslu af stjórnunarstörfum á sviði heilbrigðisþjónustu.

Óskar hefur fjölbreytta reynslu og víðtæka þekkingu á  íslensku heilbrigðiskerfi. Hann hefur starfað sem læknir og stjórnandi á mismunandi sviðum heilbrigðisþjónustunnar á landsbyggðinni, Landsspítalanum, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og í Velferðarráðuneytinu. Þá hefur hann enn fremur unnið að fjölda verkefna tengdum rekstri og stefnumótun innan heilbrigðiskerfisins, segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Óskar vann sem sérnámslæknir og sérfræðingur í heimilislækningum í Svíþjóð og hefur sú starfsreynsla víkkað sjóndeildarhring hans enn frekar.

Í umsögn hæfnisnefndar segir að Óskar hafi góða yfirsýn yfir störf ólíkra stétta innan heilbrigðisþjónustunnar og áhuga á eflingu þverfaglegs samstarfs í þágu gæða kerfisins í heild. Hann hefur ríkulega innsýn í stöðu stofnunarinnar og skýra sýn á hlutverk hennar og stefnu.