Nýr sóttvarnalæknir les fyrir háttinn og málar og teiknar

Guðrún Aspelund hefur verið ráðin sóttvarnalæknir við embætti landlæknis frá og með 1. september 2022, að því er frá greinir á vef landlæknis.

Guðrún starfar nú sem yfirlæknir á sviði sóttvarna hjá embættinu. Hún hefur embættispróf í læknisfræði frá Háskóla Íslands og sérfræðimenntun í bæði almennum skurðlækningum og barnaskurðlækningum en hún var lektor og barnaskurðlæknir við Columbia-háskóla á árunum 2007 til 2017.

Guðrún, sem jafnframt hefur lokið meistaranámi í líftölfræði, hefur góða þekkingu á smitsjúkdómum og faraldsfræði þeirra og hefur að auki komið að birtingu vísindagreina um smitsjúkdóma og sýklalyfjanotkun. Hún hefur öðlast mikla þekkingu og reynslu á verkefnum sóttvarnasviðs í starfi sínu undanfarin ár. Þá hefur hún einnig reynslu og stundar nám á sviði opinberrar stjórnsýslu.

„Ég hef öðlast góða sýn á starf sóttvarnarlæknis undanfarin ár og sé í starfinu tækifæri til að láta gott af mér leiða. Ég geri mér grein fyrir að starfinu fylgir mikil ábyrgð og ég hlakka til að takast á við verkefnin sem eru framundan,“ segir Guðrún.

„Ég er mjög ánægð með ráðningu Guðrúnar í starf sóttvarnalæknis. Hún er með góða menntun og reynslu sem mun nýtast en hefur einnig til að bera nauðsynlega eiginleika fyrir krefjandi starf sóttvarnalæknis, m.a. góða samskiptahæfni, vinnusemi, skipulagshæfni, sjálfstæði og yfirvegun,“ segir Alma D. Möller landlæknir.

Starf sóttvarnalæknis var auglýst 13. maí síðastliðinn en Þórólfur Guðnason lætur af störfum í byrjun september 2022. Auglýsingin var birt á Starfatorgi og í fjölmiðlum og var umsóknarfrestur til og með 13. júní. Ekki bárust fleiri umsóknir en frá Guðrúnu. Ráðning var ákveðin í kjölfar mats á umsókn og ítarlegs viðtals en með landlækni í því ferli voru Óskar Reykdalsson forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Unnur Valdimarsdóttur prófessor í faraldsfræði við Læknadeild Háskóla Íslands og Þórgunnur Hjaltadóttir sviðsstjóri hjá embætti landlæknis.

Guðrún lýsti dæmigerðum vinnudegi hjá sóttvarnalækni í faraldrinum í grein sem birtist í Læknablaðinu í fyrra og þar kom meðal annars fram að hún skokki gjarnan á morgnana, lesi bækur fyrir háttinn til að hreinsa hugann sem hún telji nauðsynlegt og sæki svo námskeið í Myndlistarskólanum.

„Mæti í Teikningu I. Síðasti tíminn á þessu misseri. Held áfram með ávaxtauppstillingu, mæli út og skyggi vínber, perur, epli, blómavasa. Að teikna snýst mikið um að horfa og taka eftir svo ég gleymi öðru í bili,“ skrifar hún, en forveri hennar í hinu umtalaða embætti, er sem kunnugt er, mikill tónlistarunnandi og leikur á gítar og syngur með hljómsveit.