Sett framkvæmdastjóri kirkjuráðs

Brynja Dögg Guðmundsdóttir Briem, lögfræðingur, hefur verið sett sem framkvæmdastjóri kirkjuráðs frá og með 14. nóvember 2019 og til vors 2020.

Þetta kemur fram á heimasíðu Þjóðkirkjunnar. Brynja lauk BA-námi frá lagadeild Háskóla Íslands vorið 2009 og meistaranámi vorið 2011. Þá hefur hún lokið diplómanámi í opinberri stjórnsýslu.

Brynja hefur starfað sem persónuverndarfulltrúi Biskupsstofu og að undanförnu einnig sem jafnréttisfulltrúi.

Brynja hefur starfað á Biskupsstofu í rúmt ár. Í lok sumars 2018 var hún ráðin til Biskupsstofu sem persónuverndarfulltrúi en vorið 2019 tók hún jafnframt að sér hlutverk jafnréttisfulltrúa. Þá hefur hún samhliða sinnt öðrum tilfallandi verkefnum, s.s. á sviði lögfræði, við samningagerð og á sviði vinnuverndar.

Brynja hefur sinnt margvíslegum störfum frá útskrift úr lagadeild, bæði hjá hinu opinbera en einnig í einkageiranum.