„Frá og með deginum í dag verð ég í veikindaleyfi að læknisráði. Í morgun fékk ég staðfesta greiningu á krabbameini í brjósti og mun gangast undir aðgerð og viðeigandi meðferð á næstu vikum. Ég geng upprétt til móts við þetta stóra verkefni, æðrulaus og bjartsýn. Allir mínir kraftar munu fara í það með fólkið mitt mér við hlið.“
Þannig hljóðar stutt yfirlýsing Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra á fésbók í dag.