Svandís mætt aftur til leiks og setur nýjar reglugerðir um sóttvarnaráðstafanir

Reglugerðir Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um sóttvarnaráðstafanir sem taka gildi þriðjudaginn 20. október hafa verið staðfestar og voru birtar í Stjórnartíðindum í dag. Annars vegar er ný reglugerð um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar og hins vegar breyting á reglugerð um takmarkanir á skólahaldi vegna farsóttar. Reglugerðirnar eru meðfylgjandi.

Svandís hefur verið frá störfum sem ráðherra, af persónulegum ástæðum undanfarna daga, en með tilkynningu í gær var skýrt frá því að hún sé mætt aftur til starfa í ráðuneytinu.

Heilbrigðisráðuneytið birti tilkynningu síðastliðinn föstudag þar sem gerð var grein fyrir meginefni áformaðra breytinga á sóttvarnaráðstöfunum sem taka gildi næstkomandi þriðjudag en með þeim fyrirvara að nákvæm útfærsla einstakra þátta yrði skýrð með reglugerð. Við smíði reglugerðarinnar voru höfð að leiðarljósi þau meginsjónarmið sóttvarnaráðstafana að gætt sé því að fólk haldi fjarlægð sín á milli, komi ekki saman í stórum hópum og deili ekki sameiginlegum snertiflötum nema þeir séu sótthreinsaðir á milli einstaklinga. Jafnframt eru lýðheilsusjónarmið lögð til grundvallar með áherslu á að sem flestir geti stundað íþróttir og heilsurækt í einhverjum mæli.

Vakin er athygli á 5. gr. meðfylgjandi reglugerðar um takmarkanir á samkomum varðandi útfærslu á nálægðartakmörkun í íþróttum o.fl. og bráðabirgðaákvæði reglugerðarinnar sem kveður á um strangari takmarkanir á höfuðborgarsvæðinu en gilda á landsvísu. Nánar er greint frá þessu hér að neðan:

Íþróttir og keppnir utan höfuðborgarsvæðisins:

  • Þrátt fyrir 2 metra nálægðartakmörkeru snertingar heimilar milli íþróttafólks á æfingum og í keppnum á vegum Íþrótta- og ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), en virða skal 2 metra regluna í búningsklefum og á öðrum svæðum utan keppni og æfinga. Þrátt fyrir 20 manna fjöldatakmörk er allt að 50 einstaklingum heimilt að koma saman á æfingum og í keppnum á vegum ÍSÍ. Óheimilt er að hafa áhorfendur á íþróttaviðburðum.
  • Íþrótta og heilsuræktarstarfsemi: Heimilt er með skilyrðum að standa fyrir og stunda íþrótta- og heilsuræktarstarfsemi ef um er að ræða skipulagða hóptíma þar sem allir þátttakendur eru skráðir. Við þessar aðstæður er skylt að virða 2 metra regluna, þátttakendur mega ekki skiptast á búnaði meðan á tíma stendur og allur búnaður skal sótthreinsaður á milli tíma. Sameiginleg notkun á búnaði sem er gólf- loft- eða veggfastur, s.s. á heilsuræktarstöðvum, er óheimil.

Höfuðborgarsvæðið

  • Íþrótta og heilsuræktarstarfsemi: Heimilt er með skilyrðum að standa fyrir og stunda íþrótta- og heilsuræktarstarfsemi ef um er að ræða skipulagða hóptíma þar sem allir þátttakendur eru skráðir. Við þessar aðstæður er skylt að virða 2 metra regluna, þátttakendur mega ekki skiptast á búnaði meðan á tíma stendur og allur búnaður skal sótthreinsaður á milli tíma. Sameiginleg notkun á búnaði sem er gólf- loft- eða veggfastur, s.s. á heilsuræktarstöðvum, er óheimil.
  • Heimildir fyrir íþróttastarfi, æfingum og keppnum á vegum ÍSÍ gilda ekki á höfuðborgarsvæðinu.
  • Íþrótta- æskulýðs- og tómstundastarf barna á leik- og grunnskólaaldri, þar með talið skólasund, sem krefst meiri snertingar og frekari blöndunar hópa en í skólastarfi, er óheimilt á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. í Reykjavík, á Seltjarnarnesi, í Mosfellsbæ, Kjósarhreppi, Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi.

Reglugerð um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar 

Reglugerð um takmarkanir á skólastarfi vegna farsóttar