Tryggvi nýr formaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs

Tryggvi Þorgeirsson læknir og frumkvöðull.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar, dómsmála- og nýsköpunarráðherra hefur skipað nýja stjórn Tækniþróunarsjóðs. Nýr formaður stjórnar er Tryggvi Þorgeirsson læknir og frumkvöðull.

Hlutverk sjóðsins er að styðja þróunarstarf og rannsóknir sem stuðla að nýsköpun í íslensku atvinnulífi og eflingu samkeppnishæfni landsins. Tækniþróunarsjóður fjármagnar nýsköpunarverkefni í samræmi við meginstefnu Vísinda- og tækniráðs. 

„Við viljum í gegnum Tækniþróunarsjóð ná til þeirra sem eru að þróa nýjar tæknilausnir í þágu samfélags, atvinnuþróunar, loftslagsmála, heilsu, velferðar og verðmætasköpunar. Undanfarin ár hefur sjóðurinn stutt dyggilega við bakið á fjölmörgum verkefnum og það er í höndum nýrrar stjórnar að halda þessu þýðingarmikla starfi áfram,“ segir Þórdís Kolbrún.

Nýja stjórn skipa: 
• Tryggvi Þorgeirsson, Sidekickhealth, formaður stjórnar, tilnefndur af ferðamála-,iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. 
• Laufey Hrólfsdóttir, Sjúkrahúsið á Akureyri, tilnefnd af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
• Sigríður Vigdís Vigfúsdóttir, Primex, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
• Óttar Snædal Þorsteinsson, Samtökum atvinnulífsins, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins, 
• Magnús Oddsson, Össur, tilnefndur af Samtökum iðnaðarins
• Sigyn Jónsdóttir, Men and Mice ehf., tilnefnd af Vísinda- og tækniráði