Varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar tekur við BSRB

Magnús Már Guðmundsson, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri BSRB. Magnús hefur verið borgarfulltrúi og varaborgarfulltrúi frá árinu 2014 en mun óska eftir leyfi frá störfum á fundi borgarstjórnar í næstu viku.

Magnús, sem tekur við starfinu af Helgu Jónsdóttur, hóf nýlega meistaranám í opinberri stjórnsýslu, en hann er með B.A. próf í sagnfræði frá HÍ með stjórnmálafræði sem aukagrein, auk kennsluréttinda í grunn- og framhaldsskóla.

Magnús starfaði áður með fötluðum börnum og ungmennum hjá Íþrótta- og tómstundasviði Reykjavíkurborgar með námi á árunum 2002 til 2008. Síðar starfaði hann sem fréttamaður á fréttastofu Vísis.is og Bylgjunnar.

Magnús Már hefur lengi verið virkur innan Samfylkingarinnar, hann varð varaborgarfulltrúi í kosningunum árið 2014, kom svo inn sem borgarfulltrúi um tveggja ára skeið 2016 og hefur verið varaborgarfulltrúi frá kosningunum í fyrra.

„Það eru spennandi tímar hjá BSRB eins og annars staðar í verkalýðshreyfingunni og ég hlakka til að starfa með öflugu fólki innan bandalagsins og í aðildarfélögum þess,“ segir Magnús Már í tilkynningu frá BSRB.

„Barátta verkalýðsfélaga er barátta fyrir bættu samfélagi sem rímar vel við þær hugsjónir sem ég hef beitt mér fyrir á öðrum vettvangi á undanförnum árum,“ segir hann.