„Ég ítreka enn og aftur að nú verða stjórnvöld að setja þak á neysluvísitölu verðtryggðra húsnæðislána áður, en það verður of seint.“
Þetta segir Vilhjálmur Birgisson, varaforseti ASÍ, á fésbókarsíðu sinni, en gengisþróun undanfarinna daga bendir til að nýtt verðbólguskot kunni að vera í farvatninu.
„Ég minni á að 1% verðbólguskot á einum mánuði kostar íslensk heimili 20 milljarða og ég bara trúi ekki að stjórnvöld ætli að endurtaka stærstu hagstjórnarmistök Íslandsögunnar frá árinu 2008 með því að hunsa að taka neysluvísitöluna tímabundið úr sambandi,“ segir Vilhjálmur.
Hann segir ábyrgð stjórnvalda og alþingismanna í þessu máli vera mikla en ekkert heyrist frá þeim og spurning hvort enn og aftur eigi að fórna íslenskum heimilum á blóðugu altari verðtryggingarinnar.
