„Mér svelgdist á kaffibollanum í morgun þegar ég las viðtal við Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, sem birtist á mbl.is í gær undir yfirskriftinni: Ég hef nú sjálf mótmælt,“ sagði Bergþór Ólason, formaður þingflokks Miðflokksins á Alþingi í dag.
Í viðtalinu var forsætisráðherra spurð um atvikið sem varð á ráðstefnu í Háskóla Íslands í síðustu viku þar sem ráðist var að Bjarna Benediktssyni utanríkisráðherra og kastað yfir hann rauðu glimmeri.
„Þarna er forsætisráðherra spurður með beinum hætti: Ertu tilbúin að fordæma þessa aðgerð? Forsætisráðherra, verkstjóri ríkisstjórnarinnar, svarar, með leyfi forseta: „Mér finnst þessi umræða einmitt ekki eiga að snúast um fordæmingu.“
Ég verð að viðurkenna að ég trúði því hreinlega ekki að forsætisráðherra, verkstjóri ríkisstjórnarinnar, væri ekki tilbúinn að fordæma það þegar ráðist er á ráðherra með þeim hætti sem þarna var gert. Í þessu samhengi langar mig til að beina spurningu til virðulegs forseta hvort hann teldi þá stöðu mögulega í einhverju samhengi að forseti Alþingis myndi ekki fordæma það ef ráðist yrði að óbreyttum alþingismanni með sambærilegum hætti?“ spurði Bergþór ennfremur.