Dagur tekur fram úr Davíð

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur nú gegnt embættinu samfellt lengur en Davíð Oddsson. Hann kveðst elska Reykjavík, það séu „fágæt forréttindi“ að gegna þessu starfi og borgin sé sannarlega á réttri leið, ólíkt því sem lesa megi úr neikvæðum skrifum Morgunblaðsins um borgarmálefnin.

Borgarstjórnarfundur er í dag og staða borgarinnar erfið í mörgu tilliti. Þá styttist í veru Dags í borgarstjórastólnum, því í vetur tekur Einar Þorsteinsson við af honum. En það kom ekki í veg fyrir að Dagur setti fram hugleiðingu í léttum dúr á fésbókina í dag, þar sem forveri hans kemur við sögu, sem einmitt stýrir Morgunblaðinu nú um stundir:

„Á rölti milli fundarherbergja í ráðhúsinu brá mér við stingandi augnaráð brjóstmyndarinnar af Davíð Oddssyni fyrrverandi borgarstjóra. „Hefur hún alltaf verið svona?“ – hugsaði ég. „Hvað gerði ég nú?“

Þá rifjaðist upp fyrir mér að nú eru líklega nokkrar vikur síðan ég hef verið lengur samfellt í embætti borgarstjóra en þessi ágæti ritstjóri Moggans. Hef ekki orðið var við fréttir af því á síðum blaðsins – þótt áhugi ritstjórans á að telja svona tímabil sé þekktur – en taldi ekki færri en tíu heldur neikvæðar fréttir um borgina í blaði dagsins um okkar góðu borg. Hefur þetta verið að ágerast?

Ég held ég eigi nú bara að gleðjast yfir þessu. Geir Hallgrímsson var lengur í embætti borgarstjóra en það var önnur borg og meira en hálf öld síðan. Ákvað því að sættast við styttuna, sneri við og klappaði henni af vinskap á vinstri öxlina. Það eru fágæt forréttindi að fá að sinna þessu starfi – hvað þá svona lengi – og engin ástæða til að láta neikvæðri eða reiðiskrif yfirskyggja það. Þetta er dásamleg borg hún Reykjavík. Og svo sannarlega á réttri leið.

Takk þið öll sem hafi stutt mig og gert þetta mögulegt – ég elska Reykjavík!“