„Ef mér tekst ekki að sannfæra þig um að kjósa Pírata, þá langar mig a.m.k. að sannfæra þig um að kjósa eitthvað annað en Sjálfstæðisflokkinn. Ekki vegna þess að stefna hans sé slæm heldur vegna þess að hann er orðinn svo heimakær valdinu að meðferð hans á því beinlínis einkennist af ábyrgðarleysi.“
Þetta segir Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, í færslu sem hann birtir á fésbókinni í dag.
„Það er ekkert sterkara einkenni Sjálfstæðisflokksins heldur en ábyrgðarleysi í öllum skilningi, á öllum sviðum og öllum stundum. Þessi flokkur er með fullkomið ofnæmi fyrir ábyrgð og gerir ennfremur allt sem hann getur til að grafa undan væntingum fólks til ábyrgðar í stjórnmálum,“ segir þingmaðurinn ennfremur.
„Það, hvað þessi tiltekni flokkur er rótgróinn hluti af stjórnmálasögunni og stjórnsýslunni sjálfri, er viðvarandi, sjálfstætt vandamál. Hann verður að fá pásu, þó það væri ekki nema til að hann troði því inn í hausinn á sér að það sé ekki sjálfsagt að hann sé við völd,“ bætir hann við.