„Þegar þriðji orkupakkinn hefur verið afgreiddur með yfirburðakosningu í þinginu, mun flokkurinn einbeita sér að áframhaldandi þjóðernispopúlisma og undirbúa næstu kosningar á þeim nótum. Reiknað er með að um 10% þjóðarinnar aðhyllist slíka öfgahægristefnu og þau atkvæði ætlar Miðflokkurinn að eiga vís í næstu kosningum. Hvort einhverjir af þessum gömlu og svekktu sjálfstæðismönnum sem hafa haft sig mest í frammi ganga til liðs við Miðflokkinn mun ekki skipta neinu. Jafnvel þó þekkt nöfn verði þar á meðal eins og Davíð Oddsson, Hannes Hólmsteinn, Styrmir Gunnarsson og fleiri þjóðernissinnar. Málflutningur þeirra á engan hljómgrunn.“
Þetta segir dálkahöfundurinn Náttfari í pistli á vefsíðu Hringbrautar, en þekkt er að fjárfestirinn Helgi Magnússon deilir oft stjórnmálaskýringum sínum með þjóðinni undir því heiti.
Í pistlinum er spáð mikilli dramatík í forystu Sjálfstæðisflokksins á næstunni:
„Þá er því haldið fram að Bjarni Benediktsson vilji alls ekki rugga bátnum. Hann er sagður undirbúa brottför úr stjórnmálum, jafnvel strax í haust. Hann vill stíga niður sem ráðherra og geta haldið því fram að hér ríki stöðugleiki þó horfur í þjóðarbúskapnum séu hreint ekki góðar. Bjarni mun vera orðinn „hundleiður“ á stjórnmálavafstrinu, eins og einn þingmaður flokksins sagði við okkur. Lái honum hver sem vill!
Hvað sem það kostar
Flokkseigendur Sjálfstæðisflokksins, með Bjarna í fararbroddi, ætla sér að gera Þórdísi Kolbrúnu Gylfadóttur að formanni. Hvað sem það kostar. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra á ekki upp á pallborðið hjá þeim eins og kunnugt er. Hins vegar er Guðlaugur Þór sjálfsagður arftaki Bjarna þegar litið er á pólitíska reynslu og klókindi. Þórdísi skortir reynslu þó hún hljóti að teljast efnileg og líklegur leiðtogi flokksins síðar.
Okkur skilst að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir taki við stöðu dómsmálaráðherra fljótlega eftir að þingið fer heim í júní. Mikið hefur mætt á henni að undanförnu og þykir hún hafa vaxið í áliti. Í sumar verður svo boðað til landsfundar þar sem Bjarni stígur niður og víkur fyrir nýjum formanni. Hann mun í kjölfarið hætta á Alþingi og hverfa úr ríkisstjórn.
Á landsfundi verður kosið á milli Guðlaugs Þórs og Þórdísar Kolbrúnar. Það gætu orðið lífleg átök. Guðlaugur Þór er með svo öflugt bakland í flokknum að engin mun geta komið í veg fyrir að hann verði kosinn næsti formaður Sjálfstæðisflokksins – nokkuð örugglega.“