Hvað á að kasta mörgum drullukökum áður?

„Getur verið að stuðningsmenn orkupakkans vilji helst tala um allt annað en innihald málsins?“

Þessari spurningu veltir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, upp á fésbók í tilefni fréttaflutnings á Ríkisútvarpinu um að fulltrúi Miðflokksins hafi ekki setið fund í utanríkismálanefnd í vikunni þegar þriðji orkupakkinn var þar til umræðu.

Sigmundur Davíð — sem er gamall starfsmaður Ríkisútvarpsins — segir að stofnunin hafi jafnan miklar áhyggjur þegar hún telji að stjórnmálamenn eða aðrir hlýði ekki kerfinu. Það þurfi að gera slíka menn tortryggilega.

„Nú er stofnunin búin að verja þremur dögum í að fjalla um að það hafi vantað fulltrúa Miðflokksins á einn auka nefndarfund (sem bætt var við áður auglýsta dagskrá).

Best að ég geri RÚV greiða með því að benda þeim á að oftar en ekki vantar einn, tvo eða fleiri þingmenn á nefndarfundi. Það getur átt sér ýmsar skýringar. Þar með er komið efni í 3 til 4 fréttir á dag eða 9 til 12 ef hvert tilvik er notað í þrjá daga.“

Og Sigmundur Davíð sendir Kolbeini Óttarssyni Proppé, þingmanni Vinstri grænna, tóninn:

„Svo sé ég að VG eru búnir að setja áburðardreifarana sína af stað. M.a. þingmann sem hefur aldrei skorast undan slíku frá því að hann var blaðamaður á Fréttablaðinu og notaði ófáar forsíður og aðrar greinar til að útskýra hvað það væri glatað hjá mér að þvælast fyrir Icesave.

Vísbendingarnar birtast nú hver af annarri. Þið sjáið í hvað stefnir. Það styttist greinilega í orkupakkann. Það er bara spurning hvað á að kasta mörgum drullukökum áður. Því fleiri sem þær verða því betra. 
Hvert tilvik er fyrst og fremst áminning um að stuðningsmenn O3 skorti rök og fari því í mennina en ekki málin.

Og ekki skemmir fyrir að maður fyllist nostalgíu,“ segir Sigmundur Davíð ennfremur.