Kæru landsmenn, við erum í vanda

„Kæru landsmenn. Við erum í vanda,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands í færslu sem hann birti á fésbókarsíðu forseta Íslands í gærkvöldi í tilefni þess að í dag voru enn hertar samfélagsaðgerðir á höfuðborgarsvæðinu.

„Stöndum saman í þessu. Við gerðum það í vor og getum það enn. Einhugur kemur okkur öllum til góða en langmest þeim sem á því þurfa helst að halda, fólkinu sem er veikast fyrir og þeim sem sinna sjúkum.

Í stritinu miðju stoðar lítt að velta vöngum yfir því hvað hefði kannski mátt gera öðruvísi, ræðum það síðar. Ég hvet alla til að fylgja tilmælum og leiðbeiningum og verða þannig að liði í þessu ágæta samfélagi okkar. Samstaða í þágu þjóðar, þrautseigja í verki.

Látum þetta sannast um okkur. Við erum öll almannavarnir. Sýnum hvað í okkur býr,“ segir forsetinn ennfremur.