Ekki fer á milli mála að Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, ætlar sér með flokkinn í ríkisstjórn fyrr en seinna. Hver könnunin á fætur annarri sýnir vaxandi styrk Samfylkingarinnar og á fésbókinni í dag deilir Kristrún mynd af sér á fundi með Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra og formanni Verkamannaflokksins í Noregi, en hann var staddur hér á landi í vikunni vegna forsætisráðherrafundar Norðurlandanna í Vestmannaeyjum.
Verkamannaflokkurinn norski er systurflokkur Samfylkingarinnar (sem fékk það hlutverk í arf frá gamla Alþýðuflokknum) og Kristrún segir beinum orðum í færslu sinni, að hún hafi rætt „leiðina frá stjórnarandstöðu til ríkisstjórnar,“ í spjalli sínu við Gahr Störe.
„Það er mikils virði fyrir mig að geta leitað til reynslubolta eins og Jonasar. Hann var einn af nánustu ráðgjöfum Gro Harlem Brundtland, utanríkisráðherra í ríkisstjórnum Jens Stoltenbergs og hefur nú sjálfur leitt ríkisstjórn síðan árið 2021.
Listin við að leiða sósíaldemókratískan flokk er að finna rétt jafnvægi fyrir samfélagið hverju sinni. Á milli þjóðfélagshópa og landshluta til dæmis – en líka jafnvægi á milli breytinga og varðveislu þess sem vel hefur gefist. Í Noregi hefur það tekist vel og Verkamannaflokkurinn verið stærsti flokkurinn á Stórþinginu frá árinu 1927, algjörlega óslitið. Við getum lært af þeim.
Jonas hvatti mig til að halda mínu striki og tala fyrir raunhæfum leiðum til að bæta kjör, velferð og efnahag venjulegs fólks. Atvinnu- og auðlindamál voru ofarlega á baugi og sömuleiðis samhengið á milli skatta og velferðar. Norðmenn eru stoltir af norsku leiðinni við nýtingu náttúruauðlinda og við í Samfylkingunni munum án vafa líta til Noregs þegar við setjum af stað nýtt málefnastarf um atvinnu og samgöngur í haust,“ bætir hún við.