„Þáttur Kveiks, þar sem fram komu ásakanir um alvarleg brot Samherja, kveikti eðlilega upp neikvæðar tilfinningar landsmanna. Þegar slíkt gerist hoppar Samfylkingin strax á vagn sýndarmennskunnar og slær í hvert sinn eigið met,“ segir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á fésbókinni.
„Auðvitað kom breytingatillaga við fjárlögin frá Samfylkingunni um aukið fé til skattrannsóknarstjóra og héraðssaksóknara án þess að nokkur krafa hafi komið frá embættunum auk þess sem auknu fé hefur verið varið til rannsókna á peningaþvætti og skattsvikum. Síðan kom krafa um kyrrsetningu allra eigna Samherja án þess að lagaskilyrði væru fyrir því auk þess að það myndi valda félaginu, hundruðum fjölskyldna og þjóðinni allri verulegu tjóni. Reynt var að blanda saman við þetta mál fiskveiðistjórnunarkerfinu og gráa lista FATF í pólitískum tilgangi. Kæmi ekki á óvart að Samfylkingin gæti skráð sýndarmennskuna í þessu máli í heimsmetabók Guinness.
Við höfum stofnanir til að rannsaka mál og ákæra og dæma eftir atvikum. Mikilvægt er að þessar stofnanir fái að vinna sitt verk án upphrópana og sýndarmennsku stjórnmálamanna og lærum af reynslunni í þeim efnum. Orðræða sumra stjórnmálamanna í umræðunni er í mínum huga ekkert annað en aðför að réttarríkinu og með góðum rökum má kalla það pólitíska spillingu.
Svo er ég alltaf jafn undrandi á að kjörnir fulltrúar leggi sérstaka áherslu á í málflutningi sínum að sverta Ísland um allan heim. Er Samfylkingin kominn fram úr Pírötum í þeim efnum. Vona innilega að þessu fólki verði ekki falið mikilvægt vald í framtíðinni til að gæta hagsmuna þjóðarinnar,“ segir Brynjar ennfremur.