Orri vill verða oddviti framsóknar

Orri Vignir Hlöðversson forstjóri og fv. bæjarstjóri hefur ákveðið að gefa kost á sér til að leiða lista Framsóknarflokksins í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningunum næsta vor. 

Orri, sem fæddur er árið 1964, lauk BA námi í alþjóðastjórnmálum og hagfræði frá Kaliforníuháskóla árið 1993. Hann hefur gengt starfi forstjóra Frumherja hf. síðastliðin 15 ár og er auk þess í hluthafahópi félagsins. Fyrir tíma sinn hjá Frumherja sinnti Orri starfi bæjarstjóra í Hveragerði í fjögur ár. Þar á undan starfaði hann sem framkvæmdastjóri Fjárvaka, félags innan samstæðu Kaupfélags Skagfirðinga. Orri bjó einnig í Brussel í nokkur ár þar sem hann starfaði fyrst hjá Framkvæmdastjórn ESB og síðar sendiráði Bandaríkjanna. 

Fram kemur í tilkynningu, að Orri sé alinn upp í Kópavogi og hafi búið í bænum mestan hluta ævi sinnar. Þá hafi hann lengi tekið virkan þátt í félagsstörfum. Sem dæmi gegndi Orri stjórnarformennsku knattspyrnudeildar Breiðabliks í Kópavogi um árabil. Hann gegnir enn trúnaðarstörfum innan knattspyrnuhreyfingarinnar sem stjórnarformaður Íslensks toppfótbolta og stjórnarmaður KSÍ. 

Þá er Orri bróðir Bryndísar, ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu, og fyrrverandi þingmanns.

„Það er með mikilli eftirvæntingu sem ég býð mig fram til að leiða lista Framsóknar í Kópavogi í vor. Ég hef sterka tengingu við bæinn og hef fylgst náið með vexti hans og viðgangi um langt skeið. Mínar áherslur eru á vandaða og gegnsæja stjórnsýslu, ráðdeildarsemi í rekstri og hátt þjónustustig til íbúa í öllum málaflokkum. Ég er til þjónustu reiðubúinn og legg á vogarskálarnar mína reynslu, þekkingu og styrk,“ segir í yfirlýsingu frá Orra.