Reynslan sýnir því miður að ekki veitir af aðhaldi á seðlabankastjórann

Már Guðmundsson var seðlabankastjóri frá upphafi málsins þar til í sumar.

Engin opinber stofnun sem fellur undir eftirlitsvald umboðsmanns alþingis hefur fengið verri útreið undanfarið en Seðlabanki Íslands.

Þetta segir Björn Bjarnason, fv. dómsmálaráðherra, í pistli á heimasíðu sinni. Hann segir að reyndar gæti Reykjavíkurborg undir stjórn Dags B. Eggertssonar komist þar nærri.

„Það er sameiginlegt með forsvarsmönnum þessara stofnana, Má Guðmundssyni og Degi B., að þeir gera ekkert með þessar aðfinnslur, sama úr hvaða átt þær koma,“ segir Björn.

Hann bendir á að þegar kjaraviðræður voru á viðkvæmu stigi hafi Már Guðmundsson haft uppi viðvörunarorð og gefið ráð um hvernig staðið skyldi að niðurstöðu viðræðnanna svo að félli að markmiðum peningastjórnar seðlabankans.

Björn Bjarnason fv. ráðherra.

„Þegar samið hafði verið létu áhugamenn um að seðlabankinn lækkaði stýrivexti orð falla um að markmið samninganna hefðu meðal annars verið að skapa svigrúm til vaxtalækkunar. Vonandi tækju þeir sem fara með stjórn peningamála mið af því. Er settur þrýstingur í þessa veru á seðlabankann með setningu í lífskjarasamningunum og dregið rautt strik gagnvart bankanum.

Doktorar í hagfræði og umsækjendur um embætti seðlabankastjóra við lok skipunartíma Más hafa risið til varnar sjálfstæði hans og bankans.

Reynslan sýnir því miður að ekki veitir að aðhaldi á seðlabankastjórann. Hann mótmælir því að vísu þegar það kemur frá bankaráði seðlabankans, hann gerir lítið úr aðhaldi umboðsmanns alþingis, svarar fullum hálsi í þingnefnd, stefnir ríkinu til að fá hærra kaup og nú er risið upp gegn aðhaldi aðila vinnumarkaðarins.

Her hagfræðidoktora rís bankastjóranum til varnar á lokametrunum. Talað er um bankann eins og ríki í ríkinu, utan og ofan við allt annað. Ýti það undir stjórnarhætti á borð við þá sem lýst er í öllum aðfinnslunum á hendur Má er tímabært að auka aðhaldið á öllum sviðum,“ segir Björn í pistli sínum.