Ríkisútvarpið endurspeglar sjaldnast afstöðu almennings

Gunnar Smári Egilsson, forsprakki Sósíalistaflokksins. / Ljósmynd: Útvarp Saga

„Ég heyrði upphaf Vikulokanna á Rás eitt Ríkisútvarpsins þar sem rætt var um orkustefnu Evrópusambandsins og innleiðingu hennar hérlendis. 100% viðmælenda var sammála þeirri ráðagerð, en skoðanakannanir sýna að um 30% landsmanna eru á þessari skoðun,“ segir Gunnar Smári Egilsson, fjölmiðlamaður og formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands, í færslu á fésbókinni.

Gestir í Vikulokunum í dag voru alþingismennirnir Brynjar Níelsson (D), Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (VG), Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (Viðreisn) og Guðjón S. Brjánsson (S).

Hann segir þetta alls ekki einsdæmi: „Því miður endurspeglar Ríkisútvarpið sjaldnast afstöðu almennings en endurvarpar aðeins afstöðu yfirvalda og stjórnmálaelítunnar. Það heyrir til undantekninga að rætt sé fólk utan þröngs hóps ráðafólks og þeirra sem þjónusta það um stjórnmál og annað viðfang lýðræðisvettvangsins. Þegar það gerist er almenningur sýndur á göngum Kringlunnar og er spurður um Júróvision eða hvernig honum fannst áramótaskaupið,“ segir Gunnar Smári.