Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra er sagður vilja hætta formennsku í Framsóknarflokknum. Eigi Framsókn, elsti flokkur landsins, að eiga sér framtíð verður eitthvað að gerast. Sigurður Ingi er þröskuldur sem flokkurinn verður að komast yfir. Sigurður Ingi hefur tapað fyrir Sigmundi Davíð. Það kemur skýrt fram í öllum mælingum.
Þetta segir Sigurjón Magnús Egilsson, fjölmiðlamaður, í nýjum pistli á vefnum Miðjunni. Hann fjallar þar um stöðu Framsóknarflokksins út frá nýrri könnun Fréttablaðsins sem birtist í dag, en þar mælist Framsóknarflokkurinn með verstu útkomu í sögu mælinga blaðsins.
„Ömurleg staða Framsóknarflokksins er sláandi, en skiljanleg. Í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins mælist fylgið rétt yfir sex prósentum. Höfuðandstæðingurinn, Miðflokkurinn, er meira en tvöfalt stærri. Sigurður Ingi Jóhannsson er ekki líklegur til að koma flokknum upp úr feninu þar sem hann situr pikkfastur,“ segir Sigurjón.
Eina von Framsóknar er Lilja Dögg
„Eina von Framsóknar er Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður og menntamálaráðherra. Ætli hún sér að starfa áfram í stjórnmálum og innan Framsóknarflokksins á hún fáa kosti. Formennska í flokknum kemur ein til greina. Lilja má illa við að vera spyrt við Sigurð Inga. Hún verður að taka af skarið,“ bætir hann við, en segir jafnframt að hins vegar standi vilji Sigurðar Inga til þess að Ásmundur Einar Daðason, félagsmálaráðherra, verði eftirmaður sinn.