Skammist ykkar: Það leggur ólykt frá Efstaleiti

Hólmfríður Gísladóttir leiðarahöfundur Mannlífs.

Hólmfríður Gísladóttir skrifar athyglisverðan leiðara í Mannlíf, sem kom út í gær, þar sem hún beinir spjótum sínum að Ríkisútvarpinu og stjórn þess. Sparar leiðarahöfundurinn þar ekki stóru orðin.

„Það leggur ólykt frá Efstaleiti. Fnyk af spillingu og fyrirfram ákveðinni niðurstöðu. Þegar hart er sótt að Ríkisútvarpinu úr mörgum áttum ákveður stjórn hins opinbera hlutafélags að stíga fram og færa andstæðingum „RÚV“ sprengjuvörpu í jólagjöf. „Við ætlum ekki að birta nöfn umsækjenda til að fá hæfustu umsækjendurna. Af því að ráðgjafarfyrirtækið úti í bæ sagði það.“ Þvílíkt endemis bull. Sá sem hefur hæfileika og metnað til að sækja um stöðu útvarpsstjóra er ekki í þeirri stöðu að þurfa að leyna því. Á þetta núna að verða boðleg afsökun til að veita ekki upplýsingar um umsækjendur um mikilvægar stöður? Hvarflaði ekki að neinum í pólitískri stjórn RÚV að vega og meta ávinninginn af því að halda upplýsingunum leyndum annars vegar og að fara í feluleik gagnvart þjóðinni hins vegar? Er enginn ímyndarráðgjafi starfandi hjá ráðgjafarfyrirtækinu?“

Hólmfríður segir í leiðaranum, að löngu áður en mennta- og menningarmálaráðherra tilkynnti um ráðningu nýs Þjóðleikhússtjóra hafi verið alveg sama við hvern var rætt; „stjórnmálamenn, blaðamenn, leikna eða lærða.. allir hvísluðu verst geymda leyndarmálinu 2019; starf útvarpsstjóra yrði laust til umsóknar innan tíðar. Ráðningarferlið í Þjóðleikhúsinu var sjónarspil. Og það sama virðist nú vera uppi á teningnum í Efstaleiti. Stjórn Ríkisútvarpsins vill fá að velja í stólinn bak við luktar dyr. Er nema von að menn spyrji hvort búið sé að taka ákvörðunina? Hvort málið snúist ekki um að fá hæfustu umsækjendurna heldur rétta umsækjandann? Þurftu menn e.t.v. viku til viðbótar til að sjá hvernig stemningin yrði í þjóðfélaginu, hvort við myndum ekki bara sætta okkur við að fá ekki að vita, hvort plottið myndi ganga upp?“

Segir hún einstaklega dapurlegt að starfsmenn þurfi horfa upp á stríð geysa um vinnustað sinn vegna misgáfulegra ákvarðana þeirra sem ofar eru í fæðukeðjunni.

„Skammastu þín, Kári Jónasson, og skammastu þín, stjórn Ríkisútvarpsins. Skammist ykkar fyrir að standa ekki með starfsmönnum RÚV. Skammist ykkar fyrir að halda upplýsingum frá þjóðinni sem hún á rétt á. Skammist ykkar fyrir að fela ykkur á bak við þessa ljótu ohf-druslu sem pólitíkusarnir bjuggu til. Skammist ykkar,“ segir hún.