Sumt í íslenskum stjórnmálum er fyrirsjáanlegt og annað síður, eins og gengur. Undir lok ágúst í fyrra setti Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, fram pólitískan spádóm sem Viljinn greindi frá. Nú nokkrum mánuðum síðar og í ljósi þess sem hefur síðan gerst, er fróðlegt að rifja spádóminn upp.
„Spá mín fyrir komandi pólitískan vetur:
1. Umboðsmaður alþingis kemst að því sem allir vita; ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur um að banna hvalveiðar var ólögleg.
2. Sigmundur Davíð (eða einhver annar) flytur vantrausttillögu á Svandísi.
3. VG minnir á að þeir hafi varið Jón Gunnarsson vantrausti en XD bendir á að þar hafi ekki verið um lögbrot að ræða.
4. a. Vantraust verður samþykkt og ríkisstjórnin springur.
4. b. XD ver Svandísi vantrausti við mikla þykkju flokksmanna.
Það eina sem ég tel að geti komið í veg fyrir þetta er að Svandís segi af sér áður en til vantrausts kemur.“
Það var og…