Verkfall Eflingar: Blasir við að hér er pólitísk taktík nýsósíalistanna í gangi

Einar Kárason rithöfundur og varaþingmaður Samfylkingarinnar, gerir verkfall Eflingarfólks hjá Reykjavíkurborg að umtalsefni í færslu á fésbókinni í dag og telur fisk vera undir steini, eins og sagt er.

Einar skrifar:

„Í fyrra þegar kjarasamningar voru lausir og allt stefndi í verkföll voru komnir ofurróttækir foringjar í Eflingu og VR og fleiri félög sem sögðust ætla í glerhart og heimtuðu 40 – 50 % hækkun. Sjálfur sat ég þá fáeinar vikur á þingi og fann þar mjög fyrir spennunni og óvissunni; ef færi allt í verkföll og ósveigjanlegar kröfur yrði ástand mjög eldfimt pólitískt og samfélagslega – sérstaklega voru stjórnarþingmenn á nálum.

En svo! Áður en nokkuð hafði farið af stað voru undirritaðir „hófsamir“ samningar um lágar prósentur en betri lífskjör, mjög í anda Þjóðarsáttar (sem nú er úthrópuð sem stéttasamvinna og svik) – Lífskjarasamningar!

Og maður fékk á tilfinninguna að hinir ofurróttæku hefðu bara lyppast niður.“

Og hann bætir við:

„Síðan hafa lífskjarasamningarnir verið fyrirmyndin fyrir alla launahópa, þar til nú að í einu sveitarfélagi landsins á að láta sverfa til stáls! (Í kringum 2-3 % af vinnumarkaðnum). Þar á að vaða í hörð átök, stoppa leikskóla og sorphirðu og samgöngur og flest annað, ef ekki fást 40% hækkanir lægstu launa.

Gott og vel, allt það fólk sem fengi þá hækkun er meira en vel að henni komið. En einhvernveginn blasir samt við að hér sé pólitísk taktík nýsósíalistanna í gangi. Og að hún sé þessi: Vöðum í vinstrimeirihlutann í Reykjavík! Og samfylkingarmanninn sem þar er í forystu. Sýnum þá sem stéttsvikara og hatursmenn láglaunafólks, það mun skila okkur árangri í næstu kosningum.

(Annar partur af sömu taktík er sú að úthrópa alla sem ekki þora öðru en að vera „okkur“ sammála sem auðvald, hrokagikki og afætur. En þá það; „maður hefur nú lent í öðru eins í vetur“ eins og Bubbi söng.)“