Vill Kristrún eyða fimmtán milljörðum á ári í hælisleitendur?

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, segir að Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, verði að svara spurningum um stefnu flokksins í málefnum hælisleitenda, því margir halda því fram að hún aðhyllist harðari stefnu í þeim málum en t.d. Helga Vala Helgadóttir, sem talaði fyrir stefnu Samfylkingarinnar í málaflokknum í Kastljósinu í gær.

Hannes Hólmsteinn segir á fésbókinni:

„Kristrún Frostadóttir verður að svara því, hvort hún vilji eyða fimmtán milljörðum á ári í hælisleitendur, sem sumir eru hér á vegum glæpahringja. Hún verður að svara því, hvort þeir ólöglegu hælisleitendur, sem neita að fara úr landi, eigi að sæta annarri meðferð en aðrir þeir, sem brjóta lög og sæta viðurlögum.“

Og hann bætir við:

„Hún verður að svara því, hvers vegna flokkur hennar hefur allt aðra stefnu í þessum málum en systurflokkar hennar úti í Evrópu.“