Björn Valur Gíslason, skipstjóri og fyrrverandi alþingismaður og varaformaður Vinstri grænna kemur Bjarna Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins til varna í pistli sem hann skrifar á fésbókina í dag.
Vinstri græn vilja auðvitað ólm halda stjórnarsamstarfinu áfram, verandi með forsætisráðuneytið og helstu stefnumál Sjálfstæðisflokksins í gíslingu og Björn Valur hvetur Bjarna til að gefa hvergi eftir.
„Það er fast sótt að Bjarna Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins, úr hans eigin röðum. Bjarni lýsti því yfir á flokksráðsfundi flokksins um síðustu helgi að það væri hvergi bilbug á honum að finna og ekki í boði hvorki fyrir hann né flokkinn að gefast upp fyrir komandi verkefnum og að ríkisstjórnarsamstarfið væri traust. Þessu eru ysta hægrið í flokknum ósammála þaðan sem Bjarna berast nú hótanir um stjórnarslit ef ekki verður farið að vilja þeirra. Flestir teljast þessir aðilar til minni pólitískra spámanna flokksins en endurspegla þó óánægju innan raða hans gagnvart Bjarna.
Bjarni á ekki marga kosti í stöðunni og reyndar aðeins tvo ef út í það er farið. Að lúffa fyrir háreystinni frá ysta hægrinu sem yrði þá hans pólitíski svanasöngur eða standa með sjálfum sér og trúnaði sínum við stjórnarsamstarfið og hrista þá af sér sem nú narta stöðugt í hæla hans,“ skrifar hann.