„Orkupakki númer þrjú er gott dæmi um mál sem er umdeilt að því marki að það er ólíklegt að allir innan sama þingflokks hafi á honum sömu skoðun. Engu að síður féllu atkvæði um hann með einni undantekningu nákvæmlega eftir flokkslínum. Undantekningin er Ásmundur Friðriksson sem er einfaldlega illa upplýstur um sinn flokk, vegna þess að hann er sífellt úti að aka á svæðum þar sem er lítið símasamband,“ segir Kári Stefánsson prófessor og forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, í grein sem birtist í Fréttablaðinu og á fésbókarsíðu hans í dag.
Kári, sem er grjóthörð samviska íslenskra sósíalista, er lítt hrifinn af skinhelgi vinstri manna þegar kemur að umhverfismálum og tekur dæmisögu af kaffivél sinni og samskiptum sínum við hana:
„Mín kenning er sú að mannkostur á Alþingi sé nokkurn veginn sá sem þjóðin eigi skilið, en hann nýtist illa vegna þess að stjórnmálaflokkarnir í núverandi mynd gegni fyrst og fremst því hlutverki að kæfa nýjar hugsanir og takmarka skoðanafrelsi.
Þess vegna er knýjandi þörf á því að breyta stjórnmálaflokkunum og bæta, setja þeim nýjar reglur. Það er ekki auðvelt að sjá fyrir sér hvernig best væri að standa að slíkum bótum, en ég á kaffivél frá Siemens sem hefur nú þegar lagt töluvert að mörkum til hugmyndafræðilegs undirbúnings að tillögum mínum.
Þetta er kaffivélin sem býr til kaffið sem ég drekk á morgnana áður en ég fer í vinnuna, og er býsna gott. Það þýðir einfaldlega að hún vinnur sitt verk með prýði sem stjórnmálaflokkarnir gera ekki. Oft á tíðum talar kaffivélin við mig þegar ég stend fyrir framan hana og segir til dæmis: „watertank almost empty“ eða vatnstankurinn nær tómur og þá stendur mér ekki annað til boða en að fylla hann af vatni.
Þessi kaffivél ætlast nefnilega til skilyrðislausrar hlýðni og ef hún fær ekki vatnið beitir hún fantaskap og neitar mér um kaffi. Stundum segir hún líka: „fill bean container“ eða fylltu kaffibaunatrogið og það sama gildir hér, ef ég hlýði ekki fæ ég ekki kaffi.
Nokkrum sinnum þegar ég hef verið sérstaklega geðvondur eins og hendir mig þegar ég er nývaknaður hef ég svarað henni með: „Ef þú ert með svona frekju er lágmark að þú talir móðurmálið þitt.“ En það býttar engu, vatn og baunir eða ég fæ ekkert kaffi og hún segir ekki orð á þýsku.
Þetta virkar fyrir hana og kaffivélin fær alltaf það sem hún vill.
Af þessu má draga lærdóm og setja þá reglu að ef alþingismenn greiða atkvæði með málefnum sem stangast beint á við þá grundvallarstefnu sem þeir segja kjósendum fyrir kosningar að þeir ætli að styðja þá fái þeir ekkert kaffi það sem eftir er kjörtímabilsins.
Gott dæmi um slíkt var þegar þingmenn Vinstri grænna og Samfylkingar greiddu atkvæði með þriðja orkupakkanum, sem miðast við að einkavæða orkusölu sem gengur í berhögg við hugmyndafræði félagshyggjunnar.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem greiddu atkvæði með orkupakkanum þriðja fengju hins vegar kaffið sitt og eins margar ábætur og þeir gætu í sig látið.
Þetta væri að vísu ekki meiri háttar regla, menn hafa oft lifað vel og lengi án kaffis. Það er í þriðju tilskipun kaffivélarinnar sem ég held að lykillinn að betra lífi stjórnmálaflokkanna felist og hún hljómar svona: „empty dripptray“, eða tæmdu skítaskúffuna, og þá er eins gott að sturta korginum sem einu sinni var baunir og síðan nýmalað kaffi og núna gagnslaust drasl ofan í vask eða ruslafötu.
Ímyndið ykkur ef stjórnmálaflokkarnir hefðu það aðhald sem kaffivélinn veitir og það yrði sagt við þá þegar þörf krefur: empty driptray eða tæmið skítaskúffuna.
Ef þannig kerfi væri til staðar er öruggt að Steingrímur J. Sigfússon myndi ekki verma sæti Alþingisforseta heldur væri hann órofa partur af urðuðum alþingiskorgi. Hann stofnsetti nefnilega stjórnmálaflokk sem átti að vera félagshyggjuflokkur með áherslu á umhverfismál, en yljar sér nú við hitann frá sex þúsund tonnum af kolum sem eru brennd ár hvert á Bakka til til dýrðar auðhyggjunnar.
Segir eitt við kjósendur og gerir hitt. Empty dripptray.“