Fyrsti sunnudagur í aðventu er 30. nóvember. Aðventan, jólafastan, markar upphaf nýs kirkjuárs. Hér á landi hefst jólaundirbúningur í kirkjunni þennan dag og í sunnudagaskólum er kveikt á fyrsta aðventukertinu.
Sá siður að gera aðventukrans og kveikja á kerti fyrir hvern sunnudag aðventu er ekki mjög gamall hér á landi. Hann barst hingað eftir síðari heimsstyrjöld en hefur náð að festa rætur og flest heimili skarta nú slíkum krönsum, skrifar sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir á vefinn tru.is.
Kertin eru fjögur og hefur hvert kerti þema sem hjálpar okkur að íhuga boðskap jólanna. Fyrsta kertið er kallað Spádómskerti og minnir á spádóma Gamla testamentisins um frelsarann sem koma skyldi. Næsta kerti er kallað Betlehemskertið. Það leiðir hugann að bænum þar sem Jesús fæddist í fjárhúsi og var lagður í jötu. Þriðja kertið er Hirðakertið og minnir á hirðana sem voru fyrstu mennirnir sem heyrðu um fæðingu Jesú. Fjórða kertið er Englakertið og vísar til englanna sem birtust á jólanótt og sögðu frá því að Jesús væri fæddur.
Orðið Aðventa er komið úr latínu, adventus, og þýðir „koma“. Á henni er horft fram til hans sem kom í heiminn á jólunum. Í kristnum sið hefur verið hefð að fasta á aðventu, sem einnig er kölluð jólafasta. Það er víða siður enn, einkum meðal kaþólskra og hjá rétttrúnaðarkirkjunni. Með því að fasta á kjöt og jafnvel mjólkurvörur og egg og neyta sér þannig um ýmsan betri kost vilja kristnir menn undirbúa sig betur undir helga hátíð.
Hér á landi er aðventan iðulega tími gleði og eftirvæntingar þar sem kertaljós og skrautljós lýsa upp skammdegið. Líklega er það hnattstaða landsins og skammdegið sem verður til þess að við Íslendingar leggjum svo mikla áherslu á ljósið sem tákn jólanna, ljósið sem kom í heiminn til að lýsa mönnum í landi náttmyrkranna.
Norður-evrópsk hefð
Á Vísindavef Háskólans segir að Aðventukransinn byggi á norður-evrópskri hefð. Hið sígræna greni táknar lífið sem er í Kristi og hringurinn táknar eilífðina.
Aðventukransinn, sem talinn er vera upprunninn í Þýskalandi á fyrri hluta 19. aldar, barst til Suður-Jótlands og varð algengur í Danmörku eftir 1940. Frá Danmörku barst þessi siður til Íslands. Í fyrstu var aðventukransinn aðallega notaður til að skreyta búðarglugga en á milli 1960 og 1970 fór hann að tíðkast á íslenskum heimilum og er nú orðinn ómissandi hluti þessarar árstíðar.
Fyrir rúmlega 40 árum orti norski rithöfundurinn Sigurd Muri (1927-1999) ljóð um aðventukertin fjögur sem kallast „Nå tenner vi det første lys“ og er það sungið við sænskt lag frá 1898 eftir Emmu Christinu Köhler (1858-1925).
Lilja Sólveig Kristjánsdóttir fyrrverandi kennari og safnvörður í Reykjavík þýddi ljóðið sem á íslensku ber heitið „Við kveikjum einu kerti á“ og er það á góðri leið með að verða einn þekktasti aðventusálmur Íslendinga fyrr og síðar.
Við kveikjum einu kerti á.
Hans koma nálgast fer
sem fyrstu jól í jötu lá
og Jesúbarnið er.
Við kveikjum tveimur kertum á
og komu bíðum hans,
því Drottinn sjálfur soninn þá
mun senda‘ í líking manns.
Við kveikjum þremur kertum á,
því konungs beðið er,
þótt Jesús sjálfur jötu og strá
á jólum kysi sér.
Við kveikjum fjórum kertum á.
Brátt kemur gesturinn,
og allar þjóðir þurfa að sjá,
að það er frelsarinn.
En um aðventukertin er líka til þýsk saga, er ber heitið „Fjögur kerti“. Höfundur hennar er ókunnur en þýðinguna gerði Pétur Björgvin Þorsteinsson.

Sagan er á þessa leið:
Það var búið að kveikja á öllum fjórum kertunum á aðventukransinum. Í kringum þau ríkti þögn. Ef einhver hefði verið nálægur þá hefði hann heyrt kertin tala saman.
Fyrsta kertið andvarpaði og sagði: „Ég er friðarkerti. Ljós mitt lýsir en fólkið býr ekki í friði hvert við annað. Fólkinu er alveg sama um mig!“ Ljósið á fyrsta kertinu varð minna og minna þangað til það slokknaði alveg.
Annað kertið flökti og sagði: „Ég heiti trú. En ég er alveg óþarfi. Fólkinu er alveg sama um Guð, það vill ekkert af honum vita. Það hefur engan tilgang að það sé ljós á mér.“ Krafturinn í kertinu sem nefndi sig trú var þrotinn.
Lítill trekkur dugði til. Ljósið slokknaði.
Með lágri, dapurri röddu tók þriðja kertið til máls: „Ég heiti kærleikur. En ég hef enga orku til þess að láta ljós mitt skína. Fólkið er búið að ýta mér til hliðar. Það sér bara sig sjálft og ekki náungann sem þarf á kærleikanum að halda.“ Að þessum orðum mæltum slokknaði á þriðja kertinu.
Lítið barn kom inn í herbergið þar sem aðventukransinn stóð á borðinu.
Með tárin í augunum sagði það: „Mér finnst ekki gaman þegar það er slökkt á ykkur.“
Þá svaraði fjórða kertið: „Ekki vera hrætt, kæra barn. Meðan ljós er á mér getum við kveikt á hinum kertunum. Ég heiti von.“ Það var gleðisvipur á andliti barnsins þegar það notaði ljósið af vonarkertinu til þess að kveikja á kærleikskertinu, trúarkertinu og friðarkertinu. Að því loknu sagði barnið eins og við sjálft sig: „Nú geta jólin komið í alvöru.“