15 þúsund klukkustundum sóað í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu á hverjum degi

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur fyrir hönd borgarfulltrúa flokksins lagt til að gerðar verði úrbætur á stýringu umferðarljósa í Reykjavík í því skyni að auka umferðaröryggi, bæta umferðarflæði og draga úr mengun í borginni.

Leitast verði við að nýta kosti tiltækrar tölvutækni betur en nú er gert til að ná þessum markmiðum. Það verði m.a. gert með aukinni notkun snjalltækni, sem stýrir viðkomandi umferðarljósum í þágu umferðaröryggis og -flæðis gangandi, hjólandi og akandi vegfarenda. Gervigreind verði notuð til að besta stýringuna út frá gögnum, sem aflað verði með skynjurum á umferðarljósum.

Í þessari vinnu verði hafður til hliðsjónar árangur þeirra borga á Norðurlöndunum og fleiri nágrannaríkjum, sem hafa náð góðum árangri við að auka umferðaröryggi, bæta umferðarflæði og draga úr mengun með slíkri snjalltækni. Tillagan var tekin til meðferðar á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar og samþykkt að vísa henni til umsagnar í borgarkerfinu.

„Vonandi leiðir sú skoðun til þess að ráðist verði af heilum hug í snjallvæðingu allra umferðarljósa í borginni,“ segir Kjartan í samtali við Viljann. „Með slíkri snjallvæðingu væri hægt að lágmarka umferðartafir í borginni og auka umferðaröryggi. Til dæmis myndu skynjarar tryggja að akandi eða hjólandi vegfarendur þyrftu sjaldnast að bíða á rauðu ljósi ef engin umferð væri á hliðargötunni. Einnig væri hægt að sjá til þess að gangandi og hjólandi vegfarendur fengju forgang og kæmust alltaf örugglega yfir gangbrautina en ættu það ekki undir ósveigjanlegri sekúnduklukku. Einnig væri hægt að tryggja strætó víðtækan forgang með slíkri tækni,“ bætir hann við.

Kjartan segir blasa við að miklum tíma og fjármunum sé sóað með umferðartöfum á höfuðborgarsvæðinu og ljóst að sá kostnaður nemi tugum milljörðum króna á ársgrundvelli. Rifjar hann upp að í greiningu Samtaka iðnaðarins hafi verið áætlað að 15 þúsund klukkustundum væri sóað í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu á hverjum degi.

„Það samsvarar um 25 klukkustundum árlega á hvern borgarbúa. Tafirnar kosta sitt,“ segir Kjartan.