Bandarísk flugsveit með 200 manna liðsafla í Keflavík næstu vikur

Flugsveit bandaríska flughersins er væntanleg til landsins í dag, sunnudaginn 13. ágúst, þar sem hún verður við æfingar með bandalagsríkjum í Norður-Evrópu. Um er að ræða þrjár B-2 Spirit flugvélar með allt að 200 manna liðsafla sem mun hafa aðsetur á öryggissvæðinu í Keflavík næstu vikur á meðan æfingar standa yfir.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Þar segir að undirbúningur fyrir heimsóknina hafi staðið yfir um nokkurra vikna skeið en þetta er í þriðja skipti sem flugsveit af þessu tagi kemur til Íslands.

Viðvera bandarísku flugsveitarinnar fer fram á grundvelli varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna og er mikilvægt framlag til fælingaraðgerða í Norður-Evrópu, að sögn ráðuneytisins. Landhelgisgæsla Íslands annast í umboði utanríkisráðuneytisins framkvæmd verkefnisins í samvinnu við Isavia.