„Fráleit aðför Íslandsbanka að ritstjórnarlegu sjálfstæði fjölmiðla þjónar ekki hagsmunum jafnréttisbaráttunnar“, segir í yfirlýsingu frá stjórn Blaðamannafélags Íslands, sem birtist á vef félagsins í dag.
Ekki sé nýtt að fjársterkir og valdamiklir aðilar í landinu reyni að hlutast til um og hafa áhrif á efni fjölmiðla, segir í yfirlýsingunni, þar sem nokkur dæmi um þegar það hefur gerst á Íslandi eru tekin. Það sé „… ömurlegt að upplifa það að fyrirtæki í eigu almennings hagi sér með þessum hætti. Allar slíkar tilraunir eru í andstöðu við alþjóðlegar skuldbindingar um frelsi fjölmiðla.“
Ritstjórnarlegt sjálfstæði fjölmiðla og fjölmiðlamanna sé algjört grundvallaratriði í lýðræðislegri umræðu nútímans. Annars sé hættan sú að samfélagið verði ekki endurspeglað með hlutlægum hætti, og þar með bíði traustið sem er grundvöllur lýðræðisins hnekki.
Einkennileg ákvarðanataka og spor sem hræða
„Þessa vegna mun Blaðamannafélag Íslands ávallt berjast gegn hvers kyns tilraunum til að hafa áhrif á ritstjórnarlegt sjálfstæði fjölmiðla, hvort sem þar á í hlut Fjölmiðlanefnd, eigendur eða auglýsendur. Fjölmiðlar og fjölmiðlamenn hafa verið aflvaki breytinga í íslensku samfélagi og átt stóran þátt í þeim framförum sem íslenskt samfélag hefur sannarlega tekið á undanförnum áratugum. Það voru íslenskir blaðamenn og fjölmiðlar þeirra sem settu samkynhneigð á dagskrá í íslensku samfélagi, misnotkun barna, heimilisofbeldi og ástandið á uppeldisheimilum á árum áður, svo fáein dæmi séu tekin. Og það má halda því fram með rökum að frekar halli á aldur og stétt í umfjöllun íslenskra fjölmiðla en kyn.“
Að lokum gagnrýnir stjórn félagsins bankana harðlega og segir:
„Nú verður því ekki trúað að umfjöllun fjölmiðla í gegnum tíðina um launakjör og sjálftöku forsvarsmanna bankakerfisins, sem hagar sér eins og ríki í ríkinu, nýjasta dæmið verandi ríflegur endurmenntunarstyrkur í Seðlabankanum, sem bankinn móaðist við í tæpt ár að veita upplýsingar um, valdi þessari einkennilegu ákvarðanatöku, en sporin hræða.“