Efling – stéttarfélag hefur bætt við nýju sviði í skipuriti sínu og heitir það félagssvið (e. Organizing Division). Er því ætlað að sinna áróðurs- og kynningarmálum verkalýðsfélagsins.
„Hlutverk þess er fyrst og fremst að blása nýju lífi í herskáa stéttabaráttu með virkri þátttöku félagsmanna sjálfra. Ætlunin er þannig að mynda aukið mótvægi gegn síauknum yfirráðum fyrirtækjaeigenda í samfélaginu,“ segir í tilkynningu sem verkalýðsfélagið hefur sent frá sér.
Auglýsingar og kynningarefni Eflingar og raunar fleiri verkalýðsfélaga hafa vakið athygli að undanförnu. Skemmst er að minnast átaksins Fólkið í Eflingu og auglýsingar VR með Jóni Gnarr í aðalhlutverki sem Georg Bjarnfreðarson.
Greinilegt er að verkalýðsfélögin ætla sér að taka virkan þátt í að móta almenningsálitið á vetri þar sem líkur fara vaxandi á að komi til harðra vinnudeilna og jafnvel verkfalla.
„Verkalýðshreyfingin hefur of lengi verið föst í því að bregðast við vandamálunum eftir á og er orðin of mikil þjónustustofnun. Félagssvið Eflingar er hugsað til að snúa vörn í sókn og ganga lengra í að virkja félagsmenn í baráttunni en hefur þekkst áratugum saman. Ég er gríðarlega stolt af félagssviði Eflingar og veit að það mun veita okkur mikinn styrk í kjarabaráttu næstu ára,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir formaður félagsins í tilkynningu.
Þar er einnig haft eftir Viðari Þorsteinssyni, nýjum framkvæmdastjóra Eflingar að Félagssviðið sé líklega líklega stærsta nýjungin í starfi Eflingar síðan ný forysta tók við í vor.
„Um leið og við styrkjum reglubundna þjónustu okkar við félagsmenn á sviðum sem fyrir eru, mun félagssvið auka virkni félagsmanna sjálfra í stéttabaráttunni. Vonandi ryður félagssvið Eflingar braut fyrir stóreflda baráttu víðar í hreyfingunni og í samfélaginu,“ segir hann.