Þingmennirnir Gunnar Bragi Sveinsson og Bergþór Ólason taka sæti á Alþingi í dag fimmtudaginn 24 janúar.
Í tölvuskeyti frá Miðflokknum segir:
„Aðstæður eru þannig að í ljósi fordæmalausrar aðkomu forseta Alþingis við skipun siðanefndar sjá þeir sér ekki annað fært en að afturkalla frí og taka sæti sitt á ný.
Þingmennirnir hafa eins og staðan er nú ekki lögmætan andmælarétt í sölum Alþingis og í ljósi valdníðslu forseta meta þeir þannig stöðuna að ekki sé um neitt annað að ræða en að grípa til varna.“
Gunnar Bragi sendi frá sér svofellda yfirlýsingu:
„Í kjölfar óviðeigandi og særandi orða og ólögmætrar upptöku á þeim þá tók ég þá ákvörðun að taka mér launalaust leyfi frá þingstörfum eftir að hlerunarmálið umtalaða komst í hámæli. Ég vildi skoða hug minn, safna kröftum og ræða síðan við bakland mitt. Ég iðrast og hef beðist fyrirgefningar á orðum mínum og geri það enn á ný.
Ég hef leitað ráðgjafar og um leið notið mikils skilnings og stuðnings ættingja, vina og félaga innan flokks og utan. Þakka ég þeim hvatninguna og traustið.
Miðflokkurinn gaf mér það svigrúm sem ég óskaði eftir og hvorki hvatti mig né latti til að flýta endurkomu minni. Vel má skilja það hlutleysi sem vísbendingu um að hvorki ég né aðrir væru ómissandi fyrir flokkinn og undir það tek ég heilshugar. Ég var á hinn bóginn kosinn til starfa á Alþingi af fjölda fólks og gagnvart því ber ég ríkar skyldur. Þær vildi ég að sjálfsögðu rækja á nýjan leik í fyllingu tímans. Þakka ég þeim fjölmörgu stuðningsmönnum sem hafa sett sig í samband við mig og minnt mig á þessar skyldur mínar og hvatt mig til starfa.
Stundunum eru ákvarðanir nánast teknar fyrir mann. Fremur óvænt – en samt ekki – blasir svarið við því hvenær rétt sé að snúa til baka. Fyrstu dagar þingfunda á nýju ári, og framganga forseta Alþingis að undanförnu, er með þeim hætti að annað er óhjákvæmilegt en að nýta sér allan rétt til þess að vera inni á þeim leikvelli þar sem að mér er sótt og svara fyrir mig á þeim vettvangi en ekki utan hans. Þess vegna mæti ég á nýjan leik til starfa minna á Alþingi í dag.“