Sigmar þurfti að leita sér aðstoðar á Vogi í sumar

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, þurfti að leita sér aðstoðar á sjúkrahúsinu Vogi í sumar. Þar er rekin meðferðarstofnun fyrir áfengis- og fíkniefnasjúklinga, en Sigmar hefur verið opinskár um sjúkdóm sinn á umliðnum árum.

Í grein í Vísi í dag spyr þingmaðurinn hvað samfélagið segi við þeirri staðreynd að á þessu ári stefni í að allt að 80 einstaklingar, yngri en 50 ára, deyi af völdum fíknisjúkdóms? Ef fram heldur sem horfir.

„Þetta eru tölur úr gagnagrunni SÁÁ og inn í þær vantar fólk sem er yfir fimmtugu og fólk sem deyr úr sjúkdómnum en hefur aldrei farið á Vog. Þetta eru sturlaðar tölur. Þetta þýðir að á tíu árum látast álíka margir úr fíknisjúkdómi og búa í Grundarfjarðabæ. Samt bólar lítið á langtímaáætlunum, samningum eða sáttmálum til að koma í veg fyrir þessi dauðsföll. Eru þau þó margfalt fleiri en í umferðinni.

Það er orðið tímabært að almenningur átti sig á hversu mikill fórnarkostnaður samfélagsins er vegna þessa sjúkdóms. Það er líka brýnt að stjórnvöld vakni af sínum þyrnirósarsvefni og uppfylli þá lágmarkskröfu að lífsbjargandi meðferðarstofnanir þurfi ekki að loka yfir sumartímann.

SÁÁ þurfti að loka eftirmeðferðarstöðinni Vík í sumar vegna fjárskorts. Þetta þekki ég vel því ég þurfti sjálfur að leita mér aðstoðar á Vogi í sumar. Engin framhalds meðferð í boði fyrr en löngu eftir útskrift af Vogi. Samfellan sem þarf að vera í meðferðarvinnu algerlega rofin. Ég er hins vegar svo heppinn að félagsleg staða mín er betri en margra annara og þetta kom ekki að sök í mínu tilfelli. Engu að síður er það svo að margra vikna bið á milli Vogs og Víkur fyrir fjölmarga sem berjast við þennan sjúkdóm dregur stórlega úr batalíkum. Og oft gerist það að fólk deyr á meðan það bíður eftir plássi á Vogi eða Vík. Í fyrra létust 12 einstaklingar á meðan þeir biðu eftir plássi. Þessi sjúkdómur fer ekki í sumarfríi og því ætti meðferðarstarfið ekki heldur að gera það.

Í dag háttar svo til að það geisar ópíóðafaraldur þar sem fjöldi ungra manna og kvenna berjast á vígvelli dauðans. Margir deyja, nú síðast móðir frá tveimur ungum börnum. Sjálfsaflafé SÁÁ rennur að miklu leiti í viðbragð við þessum faraldri vegna þess að þeir fjármunir sem ríkið setur í þessa tilteknu meðferð hrekkur engan veginn til. Ekki bólar heldur á viðbótarfjárframlagi ríkisins sem lofað var hátíðlega þegar umræðan um faraldurinn var sem mest fyrr á árinu. Þeir peningar hafa ekki skilað sér, sem svo aftur gerir það að verkum að meðferðarstarfið líður fyrir,“ segir Sigmar ennfremur.

Hann bendir jafnframt á, að ef það stefndi í að 80 manns myndu látast í umferðinni í ár, væri búið að lýsa yfir neyðarástandi. „Við værum að stórauka fjárframlög í samgöngur. Göng yrðu grafin, vegir breikkaðir, gatnamót löguð og umferðarfræðsla efld. Við bregðumst ekki eins við þegar fólk deyr úr fíknisjúkdómi. Við getum ekki einu sinni tryggt að meðferð standi til boða á sumrin og bjargað þannig mannslífum. Það er umhugsunarefni, vægast sagt.“