Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur tekið saman upplýsingar um greiðslur ríkisins til stjórnmálasamtaka fyrir árið 2019.
Um framlögin gilda lög nr. 162/2006 um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra. Greiðslur til stjórnmálasamtaka eru samkvæmt ákvörðun fjárlaga hverju sinni.
Stjórnmálasamtök sem hafa fengið a.m.k. einn mann kjörinn á þing eða náð að lágmarki 2,5% atkvæða eiga rétt til framlaga. Það framlag skiptist hlutfallslega milli flokka eftir atkvæðamagni í næstliðnum kosningum, að því segir í frétt frá ráðuneytinu.
Greiðslur eftir alþingiskosningar árið 2017 fyrir árið 2019 koma fram hér að neðan.