„Nú liggur fyrir álit trúnaðarmanns Alþingis sem ráðherra hefur brugðist pólitískt við og það þykir mér rétt niðurstaða og fagna henni,“ sagði Orri Páll Jóhannesson þingflokksformaður Vinstri grænna á þingi í dag þegar rætt var um hina óvæntu afsögn Bjarna Benediktssonar sem fjármála- og efnahagsráðherra eftir að birt var álit Umboðsmanns Alþingis.
Orri Páll vísaði til þess að mörg orð hefðu fallið á þingi um söluferlið í Íslandsbanka og sér væri bæði ljúft og skylt að koma upp og viðra sín sjónarmið. Sumt af því sem sagt hefði verið væri rétt en annað rangt.
„Hér gerðist ég ásamt fleirum aðilum ekki sekur um það heldur notaði orðalagið að velta við hverjum steini. En við höfum líka verið að því með því að nýta okkur þær stofnanir og þau apparöt, ef ég leyfi mér að sletta, sem eiga að vera okkur til hjálpar í að greiða úr málum og komast að niðurstöðu. Nú liggur fyrir álit trúnaðarmanns Alþingis sem ráðherra hefur brugðist pólitískt við og það þykir mér rétt niðurstaða og fagna henni,“ bætti hann við.